Knattspyrnumótið er að þessu sinni haldið á gervigrasinu hjá Þrótti í Laugardalnum. Mæting 13:00 mótið hefst 13:30 tímanlega. Til leiks hafa þegar skráð sig átta lið en eigum við eftir að fá staðfestingu frá sex liðum. Þau lið sem þegar hafa skráð sig eru:
Kristín GK 157, Baldvin Njálsson GK 400, Fjölnir SU 57, Þerney RE 101, Vigri RE 71, Freri RE 73, Höfrungur III AK 250, Venus RE 519.
Þeir sem eiga eftir að skrá lið sín sendið email á bergur@sjomenn.is Þar þarf að koma fram nafn skips og nafn liðsstjóra og gsm númer.
Athugið að ætlast er til þess að liðin séu mönnuð sjómönnum og höfum gaman af þessu.