Lögfræðiþjónusta

Lögfræðiþjónusta félagsmanna Sjómannafélags Íslands

Lögmenn Jónas & Jónas Þór sf. eru lögmenn Sjómannafélags Íslands og sinnir lögmannsstofan lögfræðilegum verkefnum fyrir félagið og félagsmenn þess. Félagsmönnum gefst kostur á viðtali við lögmennina, án endurgjalds. Ef til frekari vinnu lögmannanna kemur er félagsmönnum veittur góður afsláttur af lögfræðikostnaði. Félagsmenn geta snúið sér beint til stofunnar telji þeir sig þurfa á þjónustu lögmanna að halda. Lögmennirnir eru með aðsetur að Stórhöfða 25, 110 Reykjavík. Síminn hjá lögmannsstofunni er 562-9066. Einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið jj@vm.is.

Þessi þjónusta fyrir félagsmenn Sjómannafélags Íslands, er ekki einungis vegna launa- og kjaramála sjómanna, heldur á flestum þeim sviðum þar sem lögmanna er þörf á, til dæmis vegna sjóvinnuslysa og umferðarslysa, fasteignagalla, fjölskyldumála, svo fátt eitt sé nefnt.

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu