Að gefnu tilefni er Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi svarað!

Nú liggur fyrir að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa hunsað fyrirmæli frá ríkissáttasemjara frá fundinum í gær um að algert fjölmiðlabann skyldi ríkja og deilendur mættu ekki upplýsa hvað fram færi á samningafundum.  Sjá hér. 

Að sjálfsögðu kom ekki til greina hjá sjómannaforystunni að hunsa þessi fyrirmæli frá ríkissáttasemjara um fjölmiðlabann en í ljósi þess að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa rofið þetta fjölmiðlabann þá teljum við hér í Sjómannafélagi Íslands mjög mikilvægt að sjómenn almennt fái upplýsingar um hvað þessi bókun sem lögð var fram á fundinum í gær snérist um. 

Þessi bókun laut að því að samningsaðilar yrðu sammála um að leitað yrði skýringa á því hvers vegna erlend uppsjávarskip sem landa makríl, síld og loðnu t.d. í Noregi virðast ætíð fá hærra fiskverð en greitt er til íslenskra sjómanna. 

Bókunin laut líka að því að samningsaðilar væru sammála um mikilvægi þess að skipa fjögurra manna óháða nefnd sem hefur það hlutverk að rannsaka í hverju mismunurinn á fiskverði á makríl, síld og loðnu hér og í Noregi liggur. 

Hún laut líka að því að samningsaðilar væru sammála um að eyða þurfi þeirri tortryggni og vantrausti sem ríkt hefur um verðmyndun á uppsjávarafla og væri þessi fjögurra manna óháða nefnd einn liður í þeirri vinnu.

Þetta er nú þessi svakalega „krafa“ sem samtök fyrirtækja í sjávarútvegi skilja bara ekkert í og segja í fréttabréfi til sinna félagsmanna að þessi bókun sjómannasamtakanna sýni í verki algert viljaleysi til að ná farsælli lendingu í kjaraviðræðum sem eru á viðkvæmu stigi. 

Þessi bókun um að skipa fjögurra manna óháð rannsóknarnefnd er liður í að eyða því vantrausti og tortryggni sem ríkt hefur um áratugaskeið um verðmyndun á uppsjávarafla til íslenskra sjómenna.  Hvernig í ósköpunum stendur á þessum ofsafengu viðbrögð frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi í ljósi þess að útgerðamenn segja að verðmyndun á uppsjávarafla sé í alla staði eðlileg og þeir hafi ekkert að fela. 

Ef svo er þá ætti að vera afar auðvelt fyrir útgerðamenn að samþykkja þessa bókun sem er einungis liður í að eyða vantrausti og tortryggni við verðmyndun á uppsjávarafla.  Við í sjómannaforystunni spyrjum okkur að sjálfsögðu að því hví í ósköpunum eru útgerðamenn á móti þessari bókun í ljósi þess að útgerðin segir að ekkert sé við verðlagningu á uppsjávarafla að athuga?  Er kannski eitthvað við verðlagningu á uppsjávarafla að athuga sem ekki getur litið dagsins ljós? Að sjálfsögðu velta sjómenn því fyrir sér í ljósi þessara viðbragða. 

Sjómannafélag Íslands vill koma því skýrt á framfæri að það stóð aldrei til að hunsa fyrirmæli um fjölmiðlabann frá ríkissáttasemjara en í ljósi þess að SFS gerði það þá varð að upplýsa sjómenn um hvað þessi svokallaða „krafa“ laut að. 

Bara þannig að því sé til haga haldið þá eru sjómenn svo sannarlega tilbúnir til að ganga frá nýjum kjarasamningi enda telja sjómenn að þær kröfur sem liggja nú fyrir útgerðamönnum séu sanngjarnar,réttlátar og hóflegar

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu