Fréttir / 2023

21. desember 2023

Aðalafundur

Aðalfundur Sjómannafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 28. desember  kl. 17.010 á Hótel Sjómannaheimilið Örkin Brautarholt 29, jarðhæð. Fundarefni: Hefðbundin aðalfundarstörf. Kosning stjórn lýst.

22. júní 2023

Áskorun á ráðherra

Stjórn Sjómannafélags Íslands harmar illa ígrundaða ákvörðun matvælaráðherra, að stöðva tímabundið veiðar á langreyðum og skorar stjórnin á ráðherrann að draga ákvörðunina tafarlaust til baka. Um sé að ræða fyrirvaralausa ákvörðun þar sem bersýnilega var ekki farið eftir málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar og því sé ákvörðunin ólögmæt.

02. mars 2023

Kynningafundir á kjarasamningi fiskimanna

Kynningafundir á kjarasamningi fiskimanna verða haldnir á skrifstofu félagsins föstudaginn 3. mars kl. 14 mánudaginn 6. mars kl. 14, þriðjudaginn 7. mars kl.14 miðvikudaginn 8.mars kl.14 og fimmtudaginn 9. mars kl.

21. febrúar 2023

Kynningafundir á kjarasamningi fiskimanna

Kynningafundir á kjarasamningi fiskimanna verða haldnir á skrifstofu félagsins miðvikudaginn 22. feb. kl. 14 fimmtudaginn 23. feb. kl. 14 og föstudaginn 24. feb. kl. 14Fleiri kynningafundir verða auglýstir síðar.

16. febrúar 2023

Kosning / Atkvæðagreiðsla

Hér að neðan er tengill á kosninguna merkt „Greiða atkvæði“. Þegar smellt er á tengilinn opnast í vafra auðkenningarsíða þar sem félagsmenn auðkenna sig með Íslykilsinnskráningu. Þegar auðkenningu er lokið hefur félagsmaður aðgang að kjörseðli.

13. febrúar 2023

Sjómannafélag Íslands skrifar undir nýjan kjarasamning

Sjómannafélag Íslands og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) skrifuðu í dag undir kjarasamning, um kaup og kjör sjómanna á fiskiskipum. Samningaviðræður höfðu staðið yfir um nokkurt skeið og leit ekki út fyrir að samningar myndu takast, þrátt fyrir að Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands hefðu snemma fallist á samningstilboð SFS, en VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Sjómannafélag Íslands höfðu ekki verið tilbúin að semja við SFS.

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu