Sameiginleg yfirlýsing Sjómannafélags Íslands og Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur

Að gefnu tilefni vilja Sjómannafélag Íslands og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur beina því til íslenskra fiskimanna að ganga úr skugga um að vinnuveitendur standi skil á félagsgjöldum til þess félags sem viðkomandi kýs.

Tilefni þessarar ábendingar er að upp hafa skotið kollinum tilvik þar sem sjómenn töldu sig greiðandi félagsmenn í einu félagi, en komið hafi síðan á daginn að samkvæmt launaseðlum hefði verið greitt í annað.

Sjómannafélag Íslands og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur vekja athygli á því að öllum fiskimönnum er frjálst að velja sitt stéttarfélag, enda félagafrelsi bundið í lög.

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu